Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Aðeins vegna þess sem hv. þm. sagði um ummæli mín um umhverfissamtök þá held ég að það sé enginn misskilningur um að ég tel umhverfissamtök vera mjög gagnleg og nauðsynleg og að þau tryggi lýðræðislega umfjöllun um viðkvæm og afdrifarík mál.
En það var sérstaklega á bls. 3 í ræðu minni þar sem ég vék að þessu í sambandi við Norðurskautsráðið og ég vil aðeins útskýra hvað liggur þar að hluta til að baki. Ýmis umhverfissamtök hafa sótt mjög fast eftir að fá aukaaðild að ráðinu. Við áttum t.d. viðræður við ein slík samtök, virt samtök sem heita World Wildlife Fund. Það er nú svo með þau samtök, þrátt fyrir ágæti þeirra, að þau hafa verið með auglýsingar, t.d. í breskum blöðum, þar sem þau vara við neyslu á þorski og telja að við séum að veiða þennan fisk með óeðlilegum hætti og stundum rányrkju. Það er náttúrlega óásættanlegt að slík samtök hafi í frammi slíkan áróður sem byggir ekki á neinum vísindum eða staðreyndum. Þeir lofuðust til þess að taka þessi mál til umfjöllunar og koma í veg fyrir að slíkt gerist. En það er hins vegar svo að mörg þessara samtaka starfa í mörgum deildum og það er mjög erfitt að hafa stjórn á því hvað frá þeim kemur. Og til þessa er hér vitnað, að ef slík samtök njóta ekki lýðræðislegs aðhalds og fjármagn er notað í stórum stíl til þess að blekkja almenning, þá er ekki hægt að sætta sig við að slík samtök hafi áfram aukaaðild að mikilvægum stofnunum eins og Norðurskautsráðinu. Þetta býr að baki. En ég óska eftir að slík samtök geti tekið þátt, en það verður að vera á grundvelli sanngirni og þekkingar sem byggir á vísindalegum staðreyndum.