Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):
Herra forseti. Í tengslum við þessar upplýsingar tel ég rétt að geta þess að víða erlendis hefur verið sett löggjöf sem kveður á um með hvaða hætti eignatengsl geta verið milli fjölmiðla og mismunandi gerða fjölmiðla þar sem reynt er að koma í veg fyrir að fjölmiðlar hafi óeðlileg áhrif á skoðanamyndun í viðkomandi ríki.