Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):
Herra forseti. Ég beini eftirfarandi fyrirspurnum til hæstv. viðskrh.:
Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild þriggja stærstu fyrirtækja landsins í bankastarfsemi?
Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi fyrirtækja í bankastarfsemi umfram það sem samkeppnislög segja til um?