Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Að því er námskrárvinnuna varðar, þá er eins og ég sagði verið að vinna að henni og þar er, bæði á grunnskólastigi og á framhaldsskólastigi, um að ræða námsgreinar eða skylduáfanga sem eiga að taka á þessum málum og ýmsum öðrum sem varða líf barna og fólks almennt í nútímaþjóðfélagi.
Að því er varðar úttekt á námsefni á framhaldsskólastigi, þá er höfð í frammi margvísleg gagnrýni á það námsefni og menn nálgast umræður um það úr mismunandi áttum með jafnréttissjónarmið og einnig önnur viðhorf að leiðarljósi. Ef menn hafa rökstuddar ástæður til gagnrýni og telja að bækur uppfylli ekki þau skilyrði sem þeim ber, þá er sjálfsagt að taka slíkum athugasemdum vel og fara yfir námsefnið með slík sjónarmið í huga. En af hálfu menntmrn. verður ekki farið í úttekt á námsbókum af framhaldsskólastigi, hvorki varðandi jafnréttismál né önnur málefni sem bækurnar fjalla um því að ráðuneytið hefur ekki þann afskiptarétt af bókunum að það geti beinlínis mælt fyrir um efni þeirra en að sjálfsögðu eiga höfundar að taka mið af landslögum og fara að þeim almennu sjónarmiðum sem gilda um námsefni í skólum.