Guðni Ágústsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég ætla nú ekki að fara í langar deilur við hv. þm. en hann sagðist að segja sannleikann um þau mál. Ég viðurkenni að þessi skýrsla fjallar um tímabil í landbúnaði þegar ég gagnrýndi bæði hv. þm. og þá ríkisstjórn sem þá starfaði fyrir það hvernig að landbúnaðarmálum væri staðið. Þannig að þetta kemur ekki sárt við mig. Það segir meira um árin 1991--1995/1996. Það er vonandi að þessi skýrsla hafi eitthvert gildi en ég efast nú um, eins og margir hafa bent mér á, að síðasta ár sé versta ár sauðfjárræktarinnar á Íslandi því það segir þó hér að menn álíti að botninum sé náð. Og þegar botninum er náð þá er eitthvað sem fer upp á við, ef ég þekki hlutina rétt. Þannig að ég trúi því sem ég hef sagt hér og kynnst, bæði á ferðum mínum um landið og ekki síður úr mínu kjördæmi, að sauðfjárræktin er búin að ganga í gegnum miklar þrengingar. En innan þeirrar greinar eru mjög dugandi bændur sem hafa hafið ákveðna sókn, í meðferðinni á afurðunum, komið til móts við neytendurna og eru að nýta hverja einustu afurð af þessari skepnu. Og sú ríkisstjórn sem nú starfar hefur sem betur fer, með nýjum sauðfjársamningi í upphafi tímabilsins, náð þeim árangri að staðan er allt önnur. Birgðir voru allar horfnar á miðju sumri og varan eftirsótt. Þannig að þetta er staða dagsins. Nú er ekkert að marka þótt einhverjir 30 bændur séu teknir út úr. Það þarf miklu ítarlegri könnun til þess að fá niðurstöðu, hv. þm.