Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Ég minni á að á þessu ári hafa hækkanir orðið meiri í prósentum talið heldur en á almenna markaðnum. Ég minnti á það hér áðan að hækkanir hafa orðið um 9% almennt og til þeirra sem engin önnur laun hafa en lífeyrisbætur hefur þessi hækkun orðið tæplega 20%. Það er meira en var í tíð hv. þm. þegar hann var ráðherra.