Íslensk erfðagreining og Gagnalind hf.

Mánudaginn 17. nóvember 1997, kl. 15:20:52 (1260)

1997-11-17 15:20:52# 122. lþ. 26.1 fundur 90#B Íslensk erfðagreining og Gagnalind hf.# (óundirbúin fsp.), SF
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:20]

Siv Friðleifsdóttir:

Virðulegi forseti. Það var ágætt að fá að vita að Íslensk erfðagreining ætlar sér ekki að kaupa Gagnalind hf. Mér skildist á svari hæstv. ráðherra áðan að það stæði ekki til. En fari svo að Íslensk erfðagreining sækist eftir að kaupa Gagnalind hf. Í hvaða sporum standa sjúklingar? Í hvaða sporum stöndum við sem vitum að þarna eru mjög viðkvæmar persónuupplýsingar? Hvaða tryggingu höfum við fyrir því að þær verði ekki misnotaðar?