Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svörin. Það gleður mig að það er verið að hugsa þessi mál í menntmrn. og menn gera sér þar grein fyrir alvarleika málsins sem er vissulega mikill. Það er erfitt að vera lítil þjóð og reyna að standast samanburð við aðra sem hafa meiri fjármuni á milli handanna. Ég held að við séum komin á dálítið hættusvæði í þessum efnum, sérstaklega núna þegar við erum farin að huga að því að bjóða upp á framhaldsnám við háskólann í fleiri og fleiri greinum. En starfsmenn háskólans verða þess mjög varir að yngra fólk vill fá aðgang að þeim tímaritum og bókum sem það telur sig þurfa og hefur jafnvel vanist erlendis. Við erum í vaxandi mæli farin að bjóða upp á kandídatsnám hér við Háskóla Íslands sem vonandi á eftir að eflast enn meir. Það má t.d. minnast á að fyrir þá fjárveitingu sem ætluð er til tímaritakaupa í fjárlögum er alls ekki hægt að fjárfesta (Forseti hringir.) í aðgangi að gagnasöfnum sem er rándýr og hefur gengið erfiðlega að fá viðurkenningu þeirra sem selja aðgang að slíkum gögnum á sérstöðu okkar sem smáþjóðar í samningum um þau efni.