Flm. (Arnþrúður Karlsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka þeim hv. þm. sem hafa sýnt málinu skilingsríkar undirtektir. Hv. þm. Svavar Gestsson velti því fyrir sér út af hverju stjórnarliði kæmi með till. til þál. af þessum toga einmitt nú þegar menn væru nokkurn veginn að leggja síðustu hönd á gerð fjárlaga.
Því er til að svara að ég er nýkomin inn á þing, búin að vera hálfan mánuð. Það er rétt hjá hv. þm. Guðnýju Guðbjörnsdóttur að ég er varamaður og þetta kann að koma fólki sérkennilega fyrir sjónir en málið er það að mér er hvellbrugðið. Fólki finnst það kannski ekki þar sem það verður vart við að sama sagan endutaki sig ár eftir ár, fólk komi á hverju hausti. Ég vissi ekki betur en að Háskóli Íslands væri bæði æðsta og stærsta menntastofnun þjóðarinnar í stærsta byggðarlagi landsins. Mér finnst ömurlegt til þess að vita að forráðamenn háskólans skuli þurfa, hver á fætur öðrum, að koma með þá bón að fá að halda úti eðlilegri starfsemi. Ég endurtek að mér var hvellbrugðið að sjá þetta og ég leyni því ekki að ég óttast hvernig lausnin verður. Ég varaði við því áðan að lögð yrðu á skólagjöld og ég ítreka að ég vara við þeirri lausn.