Ummæli ráðherra

Miðvikudaginn 03. desember 1997, kl. 15:00:08 (1599)

1997-12-03 15:00:08# 122. lþ. 33.6 fundur 301. mál: #A breytingar á skattalögum# fsp. (til munnl.) frá fjmrh., Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 33. fundur

[15:00]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Hv. 5. þm. Reykn., Rannveig Guðmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs við umræðu um 5. dagskrármálið og óskaði eftir að bera af sér sakir. Forseti vill láta þess getið að vegna þess að slík umræða er sérstök, sjálfstæð umræða sem um gilda (ÖS: Sérstakar sakir.) sérstakar reglur þá þótti forseta eðlilegra að slík umræða færi fram eftir að fyrirspurnum væri svarað.