Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég vegna annarra aðkallandi starfa get ekki setið lengur á Alþingi í forföllum Ólafs Arnar Haraldssonar, 11. þm. Reykv., fer ég fram á að 2. varaþm. Framsfl. í Reykv, Vigdís Hauksdóttir kaupmaður, taki nú sæti á Alþingi.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Arnþrúður Karlsdóttir,
1. varaþm. Framsfl. í Reykv.``
Vigdís Hauksdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa.