Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breyting á lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., með síðari breytinum. Frv. er 329. mál og er að finna á þskj. 415.
Í frv. eru lagðar til tvær breytingar á lögum nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Annars vegar er lagt til að vörugjald af dráttarbifreiðum og vélknúnum ökutækjum til sérstakra nota að heildarþyngd yfir 5 tonn lækki úr 30% í 15% og hins vegar að ökutæki sem knúin eru mengunarlausum orkugjafa verði undanþegin gjaldskyldu.
Síðastliðið vor voru samþykkt á Alþingi lög er kváðu á um lækkun vörugjalds af ökutækjum sem aðallega eru ætluð til vöruflutninga og eru yfir 5 tonn að heildarþyngd úr 30% í 15%. Þegar breytingin kom til framkvæmda kom í ljós að oft er illmögulegt að greina á milli slíkra ökutækja og dráttarbifreiða, svo og ýmissa ökutækja sem ætluð eru til sérstakra nota. Jafnframt hefur mismunandi gjaldtaka af vöruflutningabifreiðum annars vegar og dráttarbifreiðum og bifreiðum til sérstakra nota hins vegar þótt óheppileg með tilliti til samkeppnissjónarmiða. Af þessum ástæðum er lagt til að vörugjald af dráttarbifreiðum og bifreiðum til sérstakra nota að heildarþyngd yfir 5 tonn verði lækkað úr 30% í 15%.
Í ákvæði til bráðabirgða er lagt til að skráðum eigendum dráttarbifreiða og ökutækja sem ætluð eru til sérstakra nota, að heildarþyngd yfir 5 tonn, sem hafa annaðhvort verið tollafgreidd eða gjaldskyld aðvinnsla hefur verið framkvæmd á, á tímabilinu 22. maí 1997 og fram til gildistöku frv., verði greiddur helmingur af því vörugjaldi sem greitt var af ökutækjum, enda hafði verið greitt 30% vörugjald af því. Þessu ákvæði er ætlað að leiðrétta það misræmi sem fram kom í gjaldtöku af slíkum ökutækjum miðað við vöruflutningabifreiðar er vörugjald af vöruflutningabifreiðum að heildarþyngd yfir 5 tonn var lækkað úr 30% í 15% sl. vor.
Þar sem ég sé, virðulegi forseti, að hv. þingmenn þekkja frv. og hafa gaman af því tel ég ástæðulaust að fara frekari orðum um þennan þátt málsins en vil geta þess að í lokin er um að ræða alls óskylt efni í 2. gr. frv. Þar segir að með frv. sé lagt til að ökutæki sem knúin eru mengunarlausum orkugjafa verði undanþegin vörugjaldi. Það er eins gott að hæstv. samgrh. er ekki í salnum, hann mun ekki hlæja að þessu því að eins og allir vita eru vegir landsins fjármagnaðir með eldsneytinu sem er bensín og olía og ef mengunarlausum ökutækjum fjölgar mjög þá getum við hætt að leggja fram vegáætlun til margra ára. Þetta var nú sagt í gamni en þá hló náttúrlega enginn.
Virðulegi forseti. Þar sem hálfgerð þreyta er komin í mannskapinn á hinu háa Alþingi tel ég ástæðulaust að hafa þessa ræðu öllu lengri en legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. efh.- og viðskn.