Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998

Þriðjudaginn 09. desember 1997, kl. 17:10:39 (1899)

1997-12-09 17:10:39# 122. lþ. 38.6 fundur 323. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998# (breyting ýmissa laga) frv., SighB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur

[17:10]

Sighvatur Björgvinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svar hans en vil láta það koma fram, virðulegi forseti, að ég gagnrýni þær aðferðir sem menn hafa viðhaft í þessu sambandi og tel það mjög óeðlilegt að umræður um stór þingmál fari fram í fjölmiðlum án þess að fjölmargir alþingismenn hafi hugmynd um hvað verið er að ræða. Hvað þá um hvað einstakir stjórnarþingmenn eru að deila sín á milli í þeim efnum.