Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. var kannski aðeins að svara öðrum ræðumönnum líka. Það er ágætt að slá margar flugur í einu og sama högginu en það sem sneri að mér var helst það að lögin um heilbrigðisþjónustu væru gömul. Já, þau eru það og það þarf að endurskoða þau. Hins vegar finnst mér grundvallaratriðin og markmiðin í lögunum um heilbrigðisþjónustu vera góð. Ég vil ekki fórna þeim satt að segja. Það er búið, mér liggur við að segja, að gera oft grín að þessum markmiðum í 1. gr. laganna um heilbrigðisþjónustu en það eru göfug mannréttindamarkmið sem mér finnst að eigi að vera í slíkum lögum. Þar snýst málið einfaldlega ekki um að tryggja það kannski 100% að gera það sem þar er heldur leitast við af fremsta megni, eins og segir í einhverjum textum sem við lærðum sum þegar við vorum aðeins yngri en við erum núna, að ná þeim markmiðum sem þar eru sett. Ég held að málið snúist um það.
Ég held að það séu nokkur atriði sem eigi að byggja upp stefnuna í heilbrigðismálum. Í fyrsta lagi þær almennu þjónustukröfur sem við gerum hér á landi. Í öðru lagi hin alþjóðlega verkaskipting sem mun líka hafa áhrif á heilbrigðisþjónustuna á komandi árum. Í þriðja lagi fjármunirnir sem við viljum verja í verkefnið. Í fjórða lagi rannsóknir og menntun þess starfsfólks sem um er að ræða. Mér finnst t.d. að við ræðum of lítið um starfsfólk hér. Starfsfólkið í heilbrigðisþjónustunni er pískað áfram talsvert mikið, sérstaklega á spítlunum, og ég held að það sé að verða býsna alvarlegt mál. Svo ætla ég bara að segja að lokum í sambandi við sameiningu spítalanna. Mér finnst það vera afskaplegur lúxus að neita sér um að skoða þessa VSÓ-skýrslu. Mér finnst að ég sem þingmaður og fulltrúi skattgreiðenda líka hafi ekki efni á að segja: ,,Ég vil ekki nota þessa VSÓ-skýrslu.`` Því það er örugglega eitthvað í henni sem hægt er að læra af.