Fjáraukalög 1997

Þriðjudaginn 09. desember 1997, kl. 23:43:40 (1971)

1997-12-09 23:43:40# 122. lþ. 38.7 fundur 55. mál: #A fjáraukalög 1997# (innan fjárhagsárs) frv., HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur

[23:43]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Svavar Gestsson hefur oft nefnt stórar tölur og talað um gífurlegan vanda og hefur talað þannig undanfarin ár þannig að það kemur mér ekkert á óvart þennan tíma sem ég hef hér verið.

Um rekstur stóru sjúkrahúsanna hér í Reykavík liggja fyrir samningar og á grundvelli þeirra samninga verður gengið í að leysa þessi mál í samkomulagi við fjárln.