Fjáraukalög 1997

Miðvikudaginn 10. desember 1997, kl. 12:18:23 (1982)

1997-12-10 12:18:23# 122. lþ. 39.2 fundur 55. mál: #A fjáraukalög 1997# (innan fjárhagsárs) frv., GE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 39. fundur

[12:18]

Gísli S. Einarsson:

Herra forseti. Það er hægt að taka undir þessa tillögu. Þó er vandinn sem er til staðar á Sólvangi upp á 28 millj. Ég tel samt þegar ég skoða málið vel að hér sé vel gert og vil gjarnan að það heyrist líka þegar komið er nokkurn veginn að málunum eins og mögulegt er að leysa þau. Þess vegna kem ég upp og gef skýringu. Ég er hlynntur þessari tillögu en bendi jafnframt á að vandinn sem er til staðar á þessari stofnun er 28 millj.