Fjárlög 1998

Föstudaginn 12. desember 1997, kl. 16:00:50 (2033)

1997-12-12 16:00:50# 122. lþ. 41.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur

[16:00]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Ég sagði í upphafi að við næðum árangri í efnahagsstjórnun á Íslandi án þess að skerða velferðarkerfið. Við erum einmitt að styrkja kerfið og það sést m.a. í því að það er raunhækkun í útgjöldum til heilbrigðismála í landinu.