Sigríður Jóhannesdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Hv. 2. þm. Austurl., formaður fjárln., Jón Kristjánsson, telur og vill ítreka að fjárveitingar til menntamála séu þó heldur skárri í þessu fjárlagafrv. en þær hafa verið á undanförnum árum. Mikill ertu nú munur en þó ertu nú ekki nema munur, er stundum sagt. Þegar grannt er skoðað og við tökum tillit til t.d. nemendafjölgunar í þeim skólum sem þarna er um að ræða þá er í rauninni um ákaflega litla, kannski í sumum tilfellum enga aukningu á fjárveitingum að ræða.
Ég ítreka það sem hv. þm. Jón Kristjánsson veit náttúrlega eins vel og ég að forsvarsmenn háskólans komu á okkar fund og lýstu því þar að þeir yrðu að fá framlög á fjárlögum hækkuð um 230 millj. kr. til að geta haldið rekstri háskólans óbreyttum. Þar af 100 millj. sem þeir töldu sig ekki hafa fengið bættar vegna kjarasamninga 1995. Þarna bar í milli og fulltrúi fjmrn. mótmælti þessu á fundi með fjárln. En það gleður mig að hv. formaður fjárln. hefur ítrekað það við fjmrn. að farið verði yfir þessa útreikninga með forsvarsmönnum háskólans.