Fjárlög 1998

Föstudaginn 12. desember 1997, kl. 18:48:58 (2069)

1997-12-12 18:48:58# 122. lþ. 41.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., LMR (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur

[18:48]

Lára Margrét Ragnarsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég skal vera fyrst til að viðurkenna gífurleg afköst, ekki bara Sjúkrahúss Reykjavíkur heldur Landspítalans einnig. En ég ítreka að þingmenn verða að horfa gagnrýnum augum á framsetningu þeirra upplýsinga sem þeir fá í hendurnar til þess að hægt sé að ræða málefnalega þessi mál innan þings.