Fjárlög 1998

Föstudaginn 12. desember 1997, kl. 22:01:28 (2086)

1997-12-12 22:01:28# 122. lþ. 41.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur

[22:01]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti upplýsir að engar breytingar hafa verið gerðar á þessu atriði þingskapa. Iðulega hefur forseti verið að tönnlast á þessu atriði hér á haustþingi að brýna menn til að fara að þingsköpum. En því er ekki að leyna að það er erfitt að halda hv. þingmönnum við þetta efni og er talsvert vandamál finnst mér í þinginu þannig að ég þakka hv. þm. fyrir þessa áminningu og mun forseti flytja þetta inn á forsætisnefndarfund á mánudaginn kemur.