Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Varðandi það að ég gagnrýni hlutina, þá er ég aðallega að gagnrýna hv. Alþingi sjálft, hvernig það stendur t.d. að fjárlagagerð. Það er ég að gagnrýna. Ég gagnrýni að það sé að taka ábyrgðina af framkvæmdarvaldinu.
Um það hvort ég hafi komið með einhverja tillögu um að minnka halla ríkissjóðs. Já, ég hef gert það. Ég hef komið með tillögu um það að fella niður sjómannaafslátt sem kostar ríkissjóð 1,6 milljarða á ári. Og ég man ekki eftir að hv. þm. hafi tekið undir það. Ég hef líka margoft sagt að ég vildi sjá meiri og þyngri áherslu á menntamál vegna þess að ég tel að það sé þjóðinni lífsnauðsyn á þessari öld upplýsinga og menntunar að hafa vel menntað fólk, vel menntaða unglinga sem yrðu menntaðir eins og mögulegt er. Ég hef lagt fram þáltill., sem kostar reyndar heilmikla peninga, um að tölvuvæða allt menntakerfið. Báðar þessar tillögur eru til umfjöllunar í nefnd. Ef þær yrðu samþykktar þá vegast þær nokkurn veginn á og gefa ríkissjóði sömu tekjur og þær kosta en breyta áherslum, hv. þm., þannig að ég tel mig ekki algerlega hafa verið aðgerðalausan í að ná fram þessum markmiðum. En ég var aðallega að gagnrýna hv. Alþingi sjálft.