Rafræn eignarskráning verðbréfa

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 13:59:13 (2120)

1997-12-13 13:59:13# 122. lþ. 42.12 fundur 149. mál: #A rafræn eignarskráning verðbréfa# frv. 131/1997, GHelg (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[13:59]

Guðrún Helgadóttir:

Hæstv. forseti. Eins og menn hafa kannski tekið eftir þá hef ég setið hjá við þessa atkvæðagreiðslu og tel mér skylt að gefa skýringu á því. Hún er einfaldlega þessi: Ég veit ekkert um það frv. sem hér liggur fyrir. Ég hef hins vegar grun um að það sé afar mikilvægt. Mér hefur ekki gefist tími til þess að skoða það vel. Mér er ekki grunlaust um að svo kunni að vera um fleiri hér inni en alla vega skal ég gangast við því að um þetta veit ég ekki neitt og get því ekki greitt um það atkvæði.