Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson):
Virðulegi forseti. Það kann að sýnast eðlileg ábending sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni. Það er nú svo að við erum að samþykkja fyrst og fremst útgjaldaáætlunarbreytingar sem eru ákveðnar en það snýr þannig að tekjuhliðinni að hún getur verið að breytast alveg fram eftir desembermánuði þannig að í stað þess að vera að breyta tölunum tvisvar, fyrst í 2. umr. og síðan við þá 3. hefur verið ákveðið, og þannig hefur verið farið að á síðustu áratugum, að tekjubreytingarnar koma inn í 3. umr. Ég vil hins vegar taka skýrt fram að að sjálfsögðu gera menn sér nokkurn veginn í hugarlund hvernig breytingarnar kynnu að verða og mér er kunnugt um að fjárln. hefur haft þær upplýsingar þó þær séu kannski ekki nákvæmar og geti ekki orðið nákvæmar fyrr en milli 2. og 3. umr. Þar er ekki verið að tala um beinar tölur heldur um nokkurn veginn tölurnar sem gætu legið fyrir eins og hv. þm. benti reyndar sjálfur á.