Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Það er afstaða okkar alþýðubandalagsmanna að greiðsla húsaleigubóta eigi að vera hjá ríkisvaldinu rétt eins og greiðsla barnabóta. Það er nauðsynlegt til að tryggja samræmdan rétt allra leigjenda um land allt og því sitjum við hjá við þessa tillögu.