Fjárlög 1998

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 14:56:48 (2148)

1997-12-13 14:56:48# 122. lþ. 42.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv. 150/1997, JónK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[14:56]

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Eins og fram hefur komið í umræðu um fjáraukalög og fjárlög hafa málefni spítalanna verið sett í ákveðinn farveg með fjárveitingum í tvennu lagi í þessum lagagreinum með stýrinefnd til þess að fara yfir málefni spítalanna og gera við þá samkomulag um fjárveitingar. Í ljósi þess greiði ég atkvæði gegn tillögunni og segi nei.