Fjárlög 1998

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 15:39:05 (2177)

1997-12-13 15:39:05# 122. lþ. 42.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv. 150/1997, ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[15:39]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Þessi tillaga er borin fram af hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur, Guðmundi Árna Stefánssyni og mér og gengur út á það að varið verði fé á fjárlögum á næsta ári, 23 millj. kr., til undirbúnings tvöföldun Reykjanesbrautarinnar. Við teljum brýnt að mörkuð verði við þessa fjárlagagerð skýr afstaða þingsins og stuðningur gagnvart þessari brýnu og skynsamlegu framkvæmd.