Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Framkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli hafa dregist úr hömlu. Áætlunum um framkvæmdir þar hefur verið frestað aftur og aftur. Nú er verið að taka af framkvæmdafé til flugvalla til þess að borga skuldir Leifsstöðvar. Við teljum að sjálfsögðu að borga eigi þær skuldir en það á ekki að taka það af framkvæmdafé flugvallanna.
Á Reykjavíkurflugvelli er ófremdarástand. Erlendir flugmenn eru farnir að sniðganga flugvöllinn. Við fáum ítrekað bréf frá landsbyggðinni um að það verði ráðist í að laga flugvöllinn þannig að hann verði öruggur. Þarna er um slysagildru að ræða. Við viljum að tekið verði á málefnum Reykjavíkurflugvallar fljótt. Ég segi já.