Fæðingarorlof

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 17:40:49 (2208)

1997-12-13 17:40:49# 122. lþ. 42.13 fundur 343. mál: #A fæðingarorlof# (feður) frv. 147/1997, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[17:40]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi þá foreldra sem ekki hafa fengið fæðingarorlof þá hefur Tryggingastofnun reynt að koma til móts við þá eins og reglur heimila og hafa gert það á ýmsa vegu. Því er ekki hægt að svara þessari spurningu með já eða nei vegna þess að þegar hefur verið leyst úr vanda margra.