Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessi svör. Varðandi þá skoðun hans að það sé allt að því smekksatriði hvort fólk fái full laun í fæðingarorlofi eða þetta verði jafnað á annan hátt, sem sé meginmarkmið hans og hæstv. heilbrrh., þá er það einfaldlega reyndin að þetta er einn meginvandinn með tilliti til launamunar kynjanna. Alls staðar erlendis þar sem greiðslur í fæðingarorlofi nálgast ekki laun skapar það mismunun því að konur hafa ekkert val, þær taka eðlilega fæðingarorlof. Þær hafa líkamlega sjálfar meiri þörf fyrir það og vegna barnsins en feður taka ekki fæðingarorlof nema orlofsgreiðslur nálgist þeirra laun. Það gengur auðvitað ekki að feður fái full laun og konur fái greiðslur eins og tíðkast hjá Tryggingastofnun núna. Þær greiðslur sem eru í boði núna fyrir feður eru þær sömu og mæður fá en miðað við þann launamun sem er á kynjunum verður meira hrap í launum feðra en mæðra. Ég held að eina leiðin sé að tengja þetta við laun og ég vil gjarnan heyra skoðun hæstv. fjmrh. á því sem hefur mikið haft sig í frammi varðandi jafnréttismál.