Eldsneytisgjald á Keflavíkurflugvelli

Mánudaginn 15. desember 1997, kl. 15:21:18 (2232)

1997-12-15 15:21:18# 122. lþ. 43.1 fundur 128#B eldneytisgjald á Keflavíkurflugvelli# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[15:21]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Hv. þm. er mjög vel að sér í þingsköpum og hefur oft verið hér með þarfar áminningar. Því finnst mér svolítið skrýtið að þurfa að benda honum á að honum býðst að leggja fram fyrirspurn til ráðherra með þinglegum hætti. Ég hef hins vegar fullkomlega svarað þeirri fyrirspurn sem hann beindi til mín. Annað er útúrsnúningur. Hann spurði mig hvernig ég mundi bregðast við. Ég svaraði því að málið væri til athugunar hjá lögfræðingum samgrn. sem er fyrsta skrefið. Það er fullkomlega eðlilegt svar á þessu stigi málsins.