Eldsneytisgjald á Keflavíkurflugvelli

Mánudaginn 15. desember 1997, kl. 15:22:13 (2233)

1997-12-15 15:22:13# 122. lþ. 43.1 fundur 128#B eldneytisgjald á Keflavíkurflugvelli# (óundirbúin fsp.), LB
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[15:22]

Lúðvík Bergvinsson:

Virðulegi forseti. Vegna orða hæstv. samgrh. held ég að rétt sé að vekja sérstaka athygli á því að hér er um að ræða dagskrárlið á vegum þingsins, þar sem við getum, samkvæmt þingsköpum, beint fyrirspurnum til hæstv. ráðherra. Hér er því algerlega um þinglega meðferð á þessari fyrirspurn að ræða þó ráðherra gæfi annað í skyn.