Skipulags- og byggingarlög

Mánudaginn 15. desember 1997, kl. 17:46:09 (2275)

1997-12-15 17:46:09# 122. lþ. 43.14 fundur 332. mál: #A skipulags- og byggingarlög# (byggingarnefndir, gjaldtaka o.fl.) frv. 135/1997, HG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[17:46]

Hjörleifur Guttormsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Hér talaði settur frsm. meiri hluta nefndarinnar og ekki fékkst málið á hreint þrátt fyrir hans orðræðu hér, aðra ræðu. Því ber ég fram við hv. frsm., með leyfi forseta, fyrirspurn þess efnis hvort í áliti meiri hlutans sé fólgin tilvísun til þess að meiri háttar framkvæmdir á sviði skógræktar og landgræðslu skuli háðar framkvæmdaleyfi eða ekki.