Háskólar

Mánudaginn 15. desember 1997, kl. 23:50:21 (2320)

1997-12-15 23:50:21# 122. lþ. 43.16 fundur 165. mál: #A háskólar# frv. 136/1997, SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[23:50]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Ég hef nú beðið um orðið hér á eftir en það er eitt atriði sem ég þyrfti að fá skýrt í þessu nú í andsvari og það er: Hvar og hvenær afturkallaði háskólinn óskir sínar um að taka IV. kaflann út úr frv. eins og hæstv. menntmrh. fullyrti áðan að háskólinn hefði gert? Hvar og hvenær gerðist það?