Háskólar

Mánudaginn 15. desember 1997, kl. 23:50:47 (2321)

1997-12-15 23:50:47# 122. lþ. 43.16 fundur 165. mál: #A háskólar# frv. 136/1997, menntmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[23:50]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef átt viðræður við háskólann í allt sumar um þetta mál. Ég sendi háskólaráði bréf, sem ég er nú ekki með með mér hér, þar sem ég skýrði afstöðu mína til ákveðinna atriða sem til umfjöllunar voru og það er alveg ljóst að háskólinn er ekki lengur með þá kröfu að IV. kafli verði afnuminn úr frv.