Háskólar

Þriðjudaginn 16. desember 1997, kl. 13:56:12 (2361)

1997-12-16 13:56:12# 122. lþ. 44.3 fundur 165. mál: #A háskólar# frv. 136/1997, SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur

[13:56]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Hér er verið að festa í lög að Háskóli Íslands er sviptur sjálfstæði sínu til að velja sinn forustumann. Hér er á ferðinni tímamótagrein. Ég óska meiri hlutanum til hamingju með að svipta háskólann sjálfstæði sínu að þessu leyti. Ég get ekki tekið þátt í aðför að skólanum af þessu tagi.