Kennaraháskóli Íslands

Miðvikudaginn 17. desember 1997, kl. 15:53:43 (2559)

1997-12-17 15:53:43# 122. lþ. 46.8 fundur 167. mál: #A Kennaraháskóli Íslands# frv. 137/1997, Frsm. SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur

[15:53]

Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir):

Herra forseti. Komið er að lokum umræðu um þetta mikilvæga mál sem hér er á dagskrá. Ég ætla að nota tækifærið til að þakka nefndarmönnum í menntmn. fyrir mjög góða samvinnu við umfjöllun um málið í þingnefndinni. Það er líka alveg ljóst að hér er á ferðinni mjög merkilegt mál sem ég veit að á eftir að styrkja kennaramenntun í landinu í framtíðinni og ég get tekið undir það að full ástæða er til þess að standa myndarlega að þeirri breytingu.