Fæðingarorlof

Fimmtudaginn 18. desember 1997, kl. 14:22:06 (2653)

1997-12-18 14:22:06# 122. lþ. 48.5 fundur 343. mál: #A fæðingarorlof# (feður) frv. 147/1997, JóhS (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur

[14:22]

Jóhanna Sigurðardóttir (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Á þskj. 520 hef ég flutt brtt. við þetta frv. ásamt hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni. Brtt. felur í sér að faðir eigi rétt á fæðingarorlofi í einn mánuð ef um er að ræða fjölburafæðingu, alvarlegan sjúkleika barns eða alvarleg veikindi móður. Þessi brtt. er efnislega tekin upp í þá brtt. sem við nú greiðum atkvæði um. Þess vegna er till. á þskj. 520 bæði við 1. gr. og 4. gr. sem líka er efnislega samhljóða dregin til baka.