Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 12:12:08 (2748)

1997-12-19 12:12:08# 122. lþ. 49.10 fundur 323. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998# (breyting ýmissa laga) frv. 130/1997, Frsm. meiri hluta VE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[12:12]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hygg að hv. þm. sé að gera nokkuð mikið úr valdi mínu til að ákveða þessa hluti en ég þakka honum samt fyrir það álit sem hann hefur á valdi mínu. Ég held að við þurfum í sjálfu sér ekkert að deila um þetta, ég og hv. þm. Við erum kannski bara mismunandi gerðir, mér líður alltaf betur að vera að þakkað fyrir það sem ég hef gert en hv. þm. vill kannski miklu frekar láta þakka sér fyrir loforðin sem hann gefur.