Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Atvinnuleysisbætur eru ekki festar í þessum bandormi eins og bætur almannatrygginga. Þar af leiðandi eru þær ekki geirnegldar með tvöfaldri tryggingu eins og bætur almannatrygginga en að sjálfsögðu taka þær --- og ég get endurtekið það sem ég sagði áðan --- þær hljóta að taka breytingum með hliðsjón af launaþróun í landinu.