Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Með þeirri brtt. sem verið er að greiða atkvæði um er einungis um það að ræða að bætt er inn í greinina heimild til þess að ef um veruleg vanskil er að ræða geti félagsmálanefndir látið greiðslu renna beint til leigusala. Það er sú breyting sem verið er að gera á þessari setningu en greinin í heild er ekki komin til atkvæða.