Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 14:02:24 (2796)

1997-12-19 14:02:24# 122. lþ. 49.3 fundur 303. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðiheimildir krókabáta) frv. 144/1997, GuðjG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[14:02]

Guðjón Guðmundsson:

Herra forseti. Flestar þær breytingar sem lagðar eru til í þessu frv. eru til bóta fyrir smábátaútgerðina og sérstaklega þá báta sem eru á dagatakmörkunum. Hins vegar er hér lagt til að heimila framsal aflaheimilda krókaleyfiskvóta. Ég tel óheillaspor að innleiða kvótabraskið í smábátaútgerðina og greiði því ekki atkvæði.