Tilhögun þingfundar

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 14:52:14 (2818)

1997-12-19 14:52:14# 122. lþ. 49.92 fundur 162#B tilhögun þingfundar#, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[14:52]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Varðandi fundahaldið í dag vill forseti taka fram að senn mun hefjast 3. umr. um fjárlagafrv. Gert verður hlé á þeirri umræðu í hálfa klukkustund kl. 5 til að halda stutta þingflokksfundi. Forseti vill enn fremur biðja formenn þingflokka að finna sig korter fyrir 5. Þá er áætlað að atkvæðagreiðslur um afbrigði fari fram rétt fyrir kl. 5 og aftur að loknu matarhléi kl. 8.30.