Fjárlög 1998

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 21:20:37 (2859)

1997-12-19 21:20:37# 122. lþ. 49.14 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv. 150/1997, SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[21:20]

Sigríður A. Þórðardóttir:

Herra forseti. Ég mæli fyrir brtt. á þskj. 645 við frv. til fjárlaga fyrir árið 1998 frá menntmn.

Nefndin hefur fjallað um úthlutun heiðurslauna listamanna fyrir næsta ár. Af þeim 15 sem hlutu heiðurslaun á þessu ári er einn látinn. Að honum frátöldum leggur nefndin til að sömu listamenn og njóta heiðurslauna í ár hljóti þau á árinu 1998.

Þeir eru: Atli Heimir Sveinsson, Árni Kristjánsson, Ásgerður Búadóttir, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Halldór Laxness, Hannes Pétursson, Indriði G. Þorsteinsson, Jón Nordal, Jón úr Vör, Jórunn Viðar, Kristján Davíðsson, Matthías Johannessen, Stefán Hörður Grímsson og Thor Vilhjálmsson.

Jafnframt gerir nefndin tillögu um að hver heiðurslaun verði áfram 1 millj. kr. Menntmn. stendur einróma að þessari tillögu.