Skyldutrygging lífeyrisréttinda

Laugardaginn 20. desember 1997, kl. 16:19:18 (2955)

1997-12-20 16:19:18# 122. lþ. 50.2 fundur 249. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda# (heildarlög) frv. 129/1997, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur

[16:19]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Í umræðunni í morgun fékkst svar frá hv. formanni efh.- og viðskn. sem var í algerum véfréttastíl. Hann gat ekki svarað einfaldri spurningu með já eða nei. Hér er lagt til að tekinn sé af þessi lagalegi vafi sem felst í 2. gr. og hún skert þannig að sá skilningur sem víðast kom fram í viðræðum í hv. efh.- og viðskn. sé skýrður og hann komi greinilega fram. Ég greiði tillögunni atkvæði mitt.