Ferill 45. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 45 – 45. mál.



Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um öryggismál sundstaða.

Frá Össuri Skarphéðinssyni.



1.      Hvaða sveitarfélög og aðrir eigendur sundstaða hafa formlega samþykkt reglur um öryggi á sundstöðum og við kennslulaugar sem gefnar voru út árið 1994?
2.      Hvaða sundstaðir uppfylla þær nú þegar?
3.      Hvaða sveitarfélög og aðrir eigendur sundstaða hafa ekki enn þá samþykkt reglurnar?
4.      Hvaða aðferðum hyggst ráðherra beita til að fá þá sundstaði sem ekki uppfylla reglurnar til að hefjast handa um að hrinda þeim í framkvæmd?


Skriflegt svar óskast.