Ferill 62. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.





122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 62 – 62. mál.


Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um olíuhreinsunarstöð.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



     1.      Með hvaða hætti hefur að undanförnu af hálfu íslenskra stjórnvalda verið fjallað um byggingu stórrar olíuhreinsunarstöðvar hérlendis?
     2.      Hvaða erlendir aðilar koma að þessu máli og hverjar eru tæknilegar og viðskiptalegar forsendur þess?
     3.      Liggur fyrir úttekt á áhættuþáttum að því er snertir mengunarhættu frá rekstri og sjóflutningum?
     4.      Hvað liggur fyrir um hugsanlega staðsetningu olíuhreinsunarstöðvar hérlendis?
     5.      Hvert er ráðgert framhald málsins?


Skriflegt svar óskast.