Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 111 – 111. mál.



Fyrirspurn



til forsætisráðherra um ráðstöfunarfé ráðherra.

Frá Kristínu Halldórsdóttur, Gísla S. Einarssyni,


Kristni H. Gunnarssyni og Sigríði Jóhannesdóttur.



    Hvernig hefur verið varið 5 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 01-199 í fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum?


Skriflegt svar óskast.