Ferill 138. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 138 – 138. mál.



Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um ráðstöfun óskiptra liða á fjárlögum.

Frá Kristni H. Gunnarssyni, Gísla S. Einarssyni,


Kristínu Halldórsdóttur og Sigríði Jóhannesdóttur.



    Hvernig hefur verið varið eftirtöldum fjárframlögum á óskiptum liðum samkvæmt sérstöku yfirliti á fjárlögum 1997, sundurliðað eftir verkefnum:
     a.      3,9 millj. kr. á liðnum 07-999 131 Félagasamtök, styrkir,
     b.      2,2 millj. kr. á liðnum 07-999 190 Ýmis framlög?


Skriflegt svar óskast.