Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 351 – 281. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um þjónustugjöld fjármálastofnana.
Frá Össuri Skarphéðinssyni.
Hve há eru eftirfarandi þjónustugjöld hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, bönkum og sparisjóð
a. lántökugjöld,
b. ítrekunargjöld vegna vanskila,
c. gjöld fyrir tilkynningar í tengslum við almenna innheimtu, svo sem greiðsluseðla,
d. gjöld fyrir greiðsluáskoranir,
e. gjöld fyrir nauðungarsölubeiðnir,
f. gjöld fyrir kröfulýsingar?
Skriflegt svar óskast.