Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 386 – 309. mál.



Frumvarp til laga



um tímareikning á Íslandi.

Flm.: Vilhjálmur Egilsson, Árni M. Mathiesen, Arnbjörg Sveinsdóttir,


Guðni Ágústsson, Sighvatur Björgvinsson, Ágúst Einarsson.



1. gr.

    Í lögum þessum merkir sumartími það tímabil ársins þegar klukkan er færð fram um 60 mínútur frá miðtíma Greenwich.

2. gr.

    Sumartími skal hvarvetna á Íslandi hefjast kl. 01.00 að miðtíma Greenwich síðasta sunnu dag í mars og ljúka kl. 01.00 að miðtíma Greenwich síðasta sunnudag í október.

3. gr.

    Utan sumartíma skal hvarvetna á Íslandi telja stundir eftir miðtíma Greenwich.

4. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1998 og falla þá jafnframt úr gildi lög nr. 6/1968, um tímareikning á Íslandi.

Greinargerð.


    Frumvarp þetta var lagt fram á 120. löggjafarþingi en varð þá ekki útrætt.
    Evrópusambandið hefur gefið út tilskipun um samræmdan sumartíma í aðildarríkjunum. Er þar miðað við að sumartími hefjist klukkan eitt eftir miðnætti síðasta sunnudag í mars mánuði og er klukkan þá færð fram um eina klukkustund. Honum ljúki síðan klukkan eitt eftir miðnætti síðasta sunnudag í október þegar klukkan er færð til baka um eina klukkustund.
    Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til Evrópuþingsins og Ráðherraráðsins frá 25. apríl 1996 er fjallað um áhrif sumartíma, þar á meðal á orkunotkun, heilbrigði, vinnuaðstæður og lífsstíl, landbúnað, umhverfisvernd, umferðaröryggi, ferðamennsku og af þreyingariðnað. Athuganir framkvæmdastjórnarinnar leiddu í ljós að engin meiri háttar vandamál væru því samfara að viðhalda sumartíma í Evrópusambandinu þó að til séu þeir sem telja breytingar hafa óþægindi í för með sér.
    Helstu niðurstöður skýrslunnar eru í fyrsta lagi hvað snertir orkunotkun að sumartíminn leiðir almennt til nokkurs sparnaðar, í öðru lagi að sumartími og tímabreytingar honum tengdar hafa engin varanleg eða alvarleg áhrif á heilsu manna, í þriðja lagi hefur sumartím inn engin neikvæð áhrif á vinnuaðstæður, í fjórða lagi hvað varðar lífsstíl manna þá hafa betri birtuskilyrði áhrif á möguleika fólks til að stunda útivist, í fimmta lagi hefur sumartím inn engin neikvæð áhrif á flesta þætti landbúnaðar, í sjötta lagi lagi leiddi rannsókn á um ferðaröryggi, sem gerð var í Bretlandi, í ljós að á sumartíma er slysatíðni almennt lægri en á vetrartíma og er það fyrst og fremst rakið til aukinnar birtu á kvöldin. Þá kom og í ljós að aukin birta síðla dags hefur jákvæð áhrif á ferðamannaþjónustu. Þá er í skýrslunni lögð áhersla á samræmingu sumartíma í Evrópusambandinu og bent á að hún sé sérstaklega brýn varðandi samgöngur, fjarskipti og ferðamennsku.
    Allar ályktanir sem dregnar verða af skýrslunni benda til þess að kostir þess að viðhalda sumartíma í Evrópusambandinu og nágrannalöndum þess séu yfirgnæfandi.
    Algengt er að forráðamenn íslenskra fyrirtækja og aðrir sem þurfa að hafa samskipti við Vestur-Evrópu yfir sumartímann kvarti undan því að samskiptatíminn styttist mjög verulega við að tímamismunurinn eykst úr einni klukkustund í tvær. Mjög erfitt getur verið fyrir fólk að ná saman í síma á þessum tíma. Fullyrða má að mikill tími og fyrirhöfn mundi sparast í viðskiptum við helstu viðskiptalöndin, eins og Danmörku, Noreg, Svíþjóð, Þýskaland, Belg íu, Holland og Frakkland, ef tímamismunurinn væri ávallt ein klukkustund. Tveir þriðju hlut ar vöruútflutnings fara til ríkja ESB og EFTA og þaðan koma um þrír fjórðu af öllum vöru innflutningi. Jafnframt koma um þrír fjórðu erlendra ferðamanna til Íslands frá þessum ríkj um. Til viðbótar öllum þeim samskiptum sem fylgja viðskiptum með vörur og þjónustu við þessi helstu viðskiptalönd okkar eru margvísleg önnur samskipti við þau, m.a. á sviði menn ingarmála. Eins tíma munur allt árið milli Íslands og meginlands Evrópu gerir samskiptin auðveldari og markvissari sem hefur afar mikla þýðingu fyrir alla sem að þeim koma.
    Einnig er mikilvægt fyrir flugsamgöngur milli Íslands og Evrópu að hér á landi verði tek inn upp sumartími til samræmis við önnur Evrópulönd. Þá þarf ekki að breyta flugáætlunum þegar tímabreytingar verða en því fylgir jafnan töluverð fyrirhöfn og kostnaður. Enn fremur leiðir sumartími til þess að flug til Evrópu frá Keflavíkurflugvelli klukkan sjö á morgnana yrði einum tíma síðar eins og á vetrum. Þetta kemur sér vel fyrir farþega í morgunflugi til Evrópu en nú er algengt umkvörtunarefni hversu snemma brottfarir eru enda skapar það oft óþægindi fyrir farþega. Ekki er óeðlilegt að ætla að farþegar í Reykjavík þurfi að fara á fæt ur tveimur og hálfum til þremur tímum fyrir brottför frá Keflavík.
    Upptaka sumartíma með þeim hætti sem hér er lýst leiðir til þess að á sumrin verður sólin hæst á lofti um klukkan hálfþrjú á daginn á vesturhluta landsins. Þetta þýðir að dagurinn er tekinn fyrr og vinnutíma lýkur fyrr en á vetrum. Með þessu móti hefur almenningur meiri möguleika á að njóta sólar og góðviðrisdaga á sumrin. Þannig eru líkur til þess að hér gæti skapast sérstök sumarstemning eins og gerist í nágrannalöndum í Evrópu. Fólk hefði mun betri tækifæri til þess að njóta útiveru eftir að vinnudegi lýkur og þannig yrðu lifnaðarhættir almennings heilbrigðari. Þetta hefur tvímælalaust hvetjandi áhrif á viðskiptalíf, götulíf og allt mannlíf á Íslandi á sumrin og ferðaþjónustan nyti góðs af. Íþróttafólk hefði einnig hag af sumartíma, jafnt keppnisfólk sem áhugamenn, þar sem birtu nyti lengur fram á kvöld síð sumars og snemma hausts. Sumartíminn kæmi sér t.d. vel fyrir skipulagningu knattspyrnu leikja og golfáhugamenn gætu betur stundað íþrótt sína. Ekki síst hefði sumartími góð áhrif á mannlífið á hinum fjölmörgu stöðum á landsbyggðinni sem eru undir eða milli hárra fjalla. Þar hefur margt fólk takmarkaða möguleika til að njóta sumarsins því að sólin hefur horfið af sjóndeildarhringnum þegar vinnudeginum lýkur.
    Því hefur stundum verið haldið fram að fólk ætti sjálft að geta skipulagt vinnu sína, hafið vinnu fyrr á morgnana og hætt fyrr á daginn, til þess að bæta samskiptin við Evrópu eða til þess að njóta sumarblíðunnar að loknum vinnudegi. Þetta er hins vegar ekki svo einfalt þar sem atvinnulífið er allt samtengt og hvert fyrirtæki miðar opnunartíma sinn við önnur fyrir tæki. Enn fremur er margvísleg þjónusta veitt á þeim tíma sem miðast við almennan vinnu dag, svo sem á dagheimilum og leikskólum. Grunnskóli hefst líka víðast hvar um áttaleytið á morgnana. Það kostar því í flestum tilvikum of mikla röskun að breyta vinnutíma einstak linga svo ekki sé talað um heilla fyrirtækja.
    Sumartími tíðkast eins og fyrr sagði í öllum helstu viðskiptalöndum okkar í austri og vestri. Ísland er sér á báti hvað þetta varðar og því hlýtur að vakna spurning um það af hverju Íslendingar vilja skera sig úr einmitt að þessu leyti. Rökin sem færð hafa verið gegn sumartímanum hafa fyrst og fremst falist í að draga fram kostnaðinn og fyrirhöfnina við að breyta klukkunni tvisvar á ári. Vissulega kostar það ákveðna fyrirhöfn en nágrannar okkar hafa talið hana léttvæga miðað við ávinninginn af sumartímanum. Því er einkennilegt að Ís lendingar skuli búa við þessa sérstöðu og mál hlýtur að vera að linni í því efni.
    Eins og að framan er greint var samhljóða frumvarp lagt fram á 120. löggjafarþingi. Frumvarpið var sent til umsagnar fjölmargra aðila, m.a. einstakra sveitarfélaga og sambanda sveitarfélaga sem öll lýsa yfir eindregnum stuðningi við frumvarpið eða gera engar athuga semdir við efni þess. Í umsögn frá Íslenskri verslun kemur fram að það væri til mikilla hags bóta fyrir þann mikla fjölda inn- og útflytjenda sem á dagleg viðskipti við helstu viðskipta lönd okkar á meginlandi Evrópu ef klukkan yrði færð fram um eina klukkustund eins og lagt er til í frumvarpinu. Þá segir í umsögn Samskipa að meginhluti viðskipta fyrirtækisins sé tengdur löndum innan EES og því væri það fyrirtækinu til mikils hagræðis ef tímamismunur milli Íslands og EES yrði sá sami allt árið um kring. Sömu sjónarmið koma fram í umsögnum Eimskipafélagsins og Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og í umsögn Verslunarráðs segir að með þeirri breytingu sem frumvarpið felur í sér megi með lítilli fyrirhöfn bæta samkeppn isstöðu íslensks atvinnulífs á alþjóðavettvangi. Samband íslenskra veitingahúsa og Flugleiðir lýsa einnig yfir stuðningi við frumvarpið og vísa til þeirra röksemda sem fram koma í grein argerð. Þá koma loks fram þær röksemdir frá Knattspyrnusambandi Íslands að í fyrsta lagi sé keppnistímabil íslenskra knattspyrnumanna það stutt að það verði æ erfiðara að koma fyr ir öllum þeim leikjum sem þarf í öllum aldursflokkum frá kl. 17–19, en tíminn takmarkist við lok vinnudags annars vegar og hins vegar við birtuskilyrði, í öðru lagi væri það tvímælalaust til bóta ef beinar sjónvarpsútsendingar frá knattspyrnuleikjum gætu hafist klukkustund síðar á deginum, í þriðja lagi væri til bóta, vegna fjölda ferðalaga íslenskra knattspyrnuliða, ef flug frá Íslandi væri klukkustund síðar á morgnana og í fjórða lagi væri sambandið í miklum samskiptum við önnur knattspyrnusambönd í Evrópu, sem og UEFA og FIFA sem staðsett eru í Sviss, og væri það til mikilla hagsbóta ef tími til samskipta við þessa aðila ykist. Sam bærileg sjónarmið varðandi skipulag móta og æfinga koma fram í umsögn Íþróttasambands Íslands.